Hægri grænir, flokkur fólksins skorar á stjórnvöld að setja á stofn Sannleiks og sáttadómstól til þess að fara ofan í öll hrunmál svo þjóðin geti sameinast um heiðarlegt verklag inn í framtíðina. Þá krefst flokkurinn upprunavottorðs fjármagns, fyrir þá aðila sem hyggja á fjárfestingar hér á landi og að uppljóstrarar og starfsmenn erlendra og innlendra fjármálafyrirtækja verðir verðlaunaðir með hluta af heimtum „sem kunna að finnast erlendis í skattaskjólum t.d. eins og á Cayman-eyjum, Lúxemborg og Tortola og ekki er búið að greiða skatt af eða gera löglega grein fyrr“ eins og segir í fréttatilkynningu frá Hægri grænum.
Einnig vill flokkurinn sekta og svipta þá aðila sem brotlegir hafa gerst við skattalög, orðum og öðrum vegtyllum sem þeim hefur hlotnast og setja þá í viðskiptabann, fyrirmuna þeim að stofna fyrirtæki og sitja í stjórnum. „Ef um opinbera starfsmenn og embættismenn er að ræða, þá á dómstóllinn að geta ávítt þá, sektað, bannað þeim að gegna opinberum trúnaðarstörfum fyrir ríki og bæi ævilangt og lækkað eða afnumið eftirlaun þeirra, eftir því hversu gróf brot þeirra eru.“





























