Í umdæmi lögreglunnar á Akureyri voru haldnar þrjár hátíðir um verslunarmannahelgina. Ein með öllu var á Akureyri, Síldarævintýrið á Siglufirði og Sæludagar í Hörgársveit. Að sögn lögreglunnar fóru allar fóru allar þessar hátíðir vel fram.
Fleira fólk var á Síldarævintýrinu heldur en síðustu ár en allt fór þó vandræðalaust fram þrátt fyrir nokkra ölvun. Sæludagar í Hörgársveit stóðu undir nafni og sóttu fjölmargir þá viðburði sem þar var boðið upp á. Svipaður fjöldi var á Einni með öllu á Akureyri eins og undanfarin ár og fór sú skemmtun í heild vel fram þrátt fyrir að talsverður erill hafi verið og lögreglan haft í nógu að snúast aðfaranótt laugardags og sunnudags.
Tiltölulega fá mál komu þó upp og engin þeirra alvarleg ef undan er skilin árás tveggja aðila, sem ekki vildu hlýta reglum um opnunartíma veitingahúsa, á lögreglumenn sem þurftu að beita bæði varnarúða og kylfum til að yfirbuga árásarmennina. Fátítt er til til þess þurfi að koma á Akureyri.
Lögreglan á Akureyri hefur tekið saman tölur um fjölda brota sem átt hafa sér stað á hátíðinni Einni með öllu síðustu árin og samkvæmt þeim virðist sem tekist hafi all þokkalega að færa hátíðina í betra horf en áður var.
Viðbót: Eins og lesendur hafa réttilega bent á er ekki þar með sagt að ekkert kynferðisbrot hafi átt sér stað á hátíðinni þótt enn hafi ekki komið fram kærur um slíkt. Þetta er mikilvægt að hafa í huga og blaðamaður þakkar vökulum lesendum ábendinguna!
Málafjöldi frá kl. 19:00 á fimmtudag til 19:00 á mánudag um verslunarmannahelgi frá árinu 2005. Smellið á myndina til að stækka.






























