Ratleikur í tilefni af afmæli Akureyrar

Ratleikur í tilefni af afmæli Akureyrar

Aðstandendur kynna Grenndargral fjölskyldunnar.

Vafi leikur á tilvist hins heilaga grals Krists en aftur á móti leikur enginn vafi á tilvist Grenndargralsins. Það leynist á vísum stað í heimabyggð og bíður þess að ævintýrarmenn leiti það uppi. Í tilefni af 150 ára afmæli Akureyrarbæjar gefst bæjarbúum og öðrum áhugasömum tækifæri til að finna Grenndargral fjölskyldunnar. Þátttakendur leysa þrjár þrautir á jafnmörgum vikum sem allar tengjast sögu Akureyrar þar sem m.a. morðóðir draugar, skoskt gufuskip og seinheppnar systur koma við sögu. Kapphlaupið nær hámarki þegar þátttakendur fá afhenda lokavísbendingu laugardaginn 25. ágúst sem leiðir þá að gralinu.

Gripurinn sem barist verður um á rætur sínar að rekja til Randers, vinabæjar Akureyrar í Danmörku. Ingvar Engilbertsson er hönnuður gralsins auk þess sem hann smíðar gripinn. Sigurvegararnir fá gralið afhent til eignar að leit lokinni. Hér er um að ræða sérstaka hátíðarútgáfu af grenndargralinu sem aðeins verður keppt um í þetta eina skipti. Öll lið sem klára þrautirnar þrjár fá viðurkenningarskjöl fyrir þátttökuna.

Skipuleggjendur Grenndargralsins eru þau Brynjar Karl Óttarsson, Helga Halldórsdóttir og Sigrún Sigurðardóttir, en fyrirmynd Grenndargrals fjölskyldunnar er tilraunaverkefni í grenndarkennslu hjá nemendum í 8.-10. bekk sem hófst haustið 2008 í Giljaskóla. Verkefnið ber yfirskriftina Leitin að Grenndargralinu og þar ferðast nemendur um bæinn og kynnast sögu heimabyggðar í gegnum skemmtilegar og spennandi vettvangsferðir og rannsóknarleiðangra. Haustið 2011 hófu sex grunnskólar á Akureyri þátttöku og fólst síðasta þrautin í því að hafa uppi á höfundi bókarinnar Heimkomunnar sem búsettur er á Akureyri.

Leitin að Grenndargral fjölskyldunnar hófst miðvikudaginn 1. ágúst kl. 12:00 þegar fyrsta þraut fór í loftið. Allt sem þarf að gera er að fara á heimasíðu Leitarinnar að grenndagralinu www.grenndargral.is, finna fyrstu þraut og fylgja fyrirmælum sem þar koma fram.

Allir geta tekið þátt, jafnt ungir sem aldnir. Engin takmörk eru fyrir því hversu margir skipa þátttökuliðin og þannig geta fjölskyldur, vinnustaðir eða vinahópar tekið sig saman og myndað lið. Ekki þarf að skrá lið til þátttöku. Hægt er að hefja þátttöku hvenær sem er á tímabilinu 1.-24. ágúst. Hvorki þarf að tilkynna sérstaklega þegar lið hefur þátttöku né ef það kýs að draga sig úr keppni.

Nálgast má upplýsingar um framkvæmd og leikreglur á heimasíðu Leitarinnar að grenndargralinu www.grenndargral.is og áfacebook-síðu Grenndargralsins.

Mikilvægar dagsetningar:

miðvikudagur 1. ágúst kl. 12:00: Fyrsta þraut birtist á grenndargral.is
miðvikudagur 8. ágúst kl. 12:00: Önnur þraut birtist á grenndargral.is
miðvikudagur 15. ágúst kl. 12:00: Þriðja þraut birtist á grenndargral.is
fimmtudagur 23. ágúst kl. 00:00: Réttar úrlausnir við þrautunum komnar til umsjónarmanna
laugardagur 25. ágúst: Lokavísbending birt – gralið fundið???

Bæjarbúar eru hvattir til að taka þátt í skemmtilegum ratleik í góðra vina hópi og upplifa gleði og sorgir Akureyringa fyrr á tímum með því að heimsækja vettvang spennandi atburða í sögu bæjarins.

Brynhildur Þórarinsdóttir

Talandi vefur styrktur

Úthlutun þróunarsjóðs námsgagna fyrir árið 2013 hefur farið fram. Sjóðnum bárust 144 umsóknir, samanlagðar fjárbeiðnir námu tæplega 190 millj. kr. en til ráðstöfunar voru um 43 ... Lesa »

Ian_Anderson_OJT_1200

Erlendar stórstjörnur í Hofi

Menningarhúsið Hof lýkur sínu þriðja starfsári í júní með glæsilegum tónleikum bresku rokkhljómsveitarinnar Jethro Tull. Hljómsveitarmeðlimir bætast þar með í hóp þeirra nær ... Lesa »

IMG_1489

600 björgunarsveitarmenn á Akureyri um helgina

  Ein stærsta grillveisla landsins var haldin í gærkvöldi þegar um 600 sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar gæddu sér á hamborgurum sem frambjóðendur til stjórnar ... Lesa »

IMG_0713-21-770x450

Salatdressingar fyrir sumardaga

Hér koma fjórar einfaldar uppskriftir af dásamlegum dressingum fyrir sumarsalatið. Ein með öllu 2 dl majones 2 dl sýrður rjómi 1 msk ólífuolía 1/2 sítróna, safi og börkur 1 ... Lesa »

Ragnar Hólm Ragnarsson

Ég er sennilega dálítið mikil tilfinningavera

Ragnar Hólm er mörgum kunnur. Í röskan áratug hefur hann séð um kynningar- og upplýsingamál hjá Akureyrarbæ og ann sinni heimabyggð ákaflega. Í viðtali við Akureyri vikublað ræðir ... Lesa »

Kvennakór Akureyrar

Konur syngja á Blönduósi

Kvennakór Akureyrar sækir Blönduós heim þann 25. maí næst komandi en þá heldur kórinn sína fyrri vortónleika í Blönduóskirkju kl 15:00. Síðari vortónleikarnir verða daginn eftir ... Lesa »

Úr Héðinsfjarðargöngum. Mynd af vef Vegagerðarinnar

Héðinsfjarðargöng lokuð á morgun kl. 10-11

Á morgun, laugardaginn 25. maí milli kl. 10:00 og 11:00 verður Slökkvilið Fjallabyggðar með slökkviliðsæfingu í Héðinsfjarðargöngum. Göngin verða því lokuð meðan á æfingunni ... Lesa »

9779724_s

Ódýrt að fá lús á Siglufirði!

Þótt nú sé ekki kjörlendi fyrir vetrargestinn lúsina á íslenskum heimilum kannaði Verðlagseftirlit ASÍ verð á lúsarsjampói, smokkum og unaðsolíu nýverið. Farið var í 18 apótek en ... Lesa »

13273515_s

Lifrarbólgufaraldur rakinn til frosinna jarðarberja

Niðurstöður rannsókna á lifrarbólgu tilfellum sem greinst hafa í Skandinavíu undanfarna mánuði gefa til kynna að frosin jarðarber séu orsakavaldur lifrarbólgunnar. Matvælastofnun og ... Lesa »

bjorgun

Bíll lenti út í á vestan Öxnadalsheiðar

Betur fór en á horfðist nú í hádeginu þegar tilkynning barst um að bíll hefði lent úti í Norðurá, vestan Öxnadalsheiðar. Svo vel vildi til að Björgunarsveitin Klakkur frá ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá Icelandair og Flugfélag Íslands fyrir að mismuna farþegum, segir kona af Brekkunni sem sendi blaðinu póst. Hún segir að kennari sem kom með Icelandair frá Bandaríkjunum til að ... Lesa »

Thorka_2011

Flestir halda með Þór/KA

MMR kannaði stuðning við knattspyrnulið í efstu deild karla og kvenna á Íslandi (Pepsideildin). Þór/KA var það knattspyrnulið í efstudeild á Íslandi, karla eða kvenna, sem flestir ... Lesa »

Girnilegur, hollur og staðgóður morgungrautur

Fjórði hver borðar ekki reglulega morgunmat

Ríflega þriðjungur svarenda stundar enga líkamsrækt samkvæmt könnun sem Háskólabrú gerði í síðasta mánuði. Byggt er á ríflega 400 svörum, þar af var meirihlutinn Akureyringar. ... Lesa »

lavamynd

Telur ólíklegt að listamaður sé að verki

Hlynur Hallsson myndlistarmaður á Akureyri telur ólíklegt að listamaður eða listamenn hafi verið að verki í Mývatnssveit undanfarið. Alls er búið að skemma þrjú náttúrufyrirbrigði ... Lesa »

umferdarlokanir_vegna_brunnavinnu_24_mai_2013

Uppfærðar upplýsingar vegna viðhaldsvinnu Norðurorku í miðbænum

Á morgun, föstudag 24. maí hefjast framkvæmdir við að fjarlægja þrjá hitaveitubrunna í Miðbænum, tvo í Kaupvangsstræti og einn í Skipagötu. Nánar tiltekið eru brunnarnir á ... Lesa »

image001

Markaðsstofa Norðurlands vill gjaldtöku af ferðamönnum

Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands var haldinn á Akureyri í dag og sendi fundurinn frá sér ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við yfirvofandi hættu á óafturkræfum ... Lesa »

Lundargata 9

Hús vikunnar: Lundargata 9

Síðastu Hús vikunnar voru Lundargata 7 og Gránufélagsgata 10 og nú er það bara næsta hús en það stendur á horni þessara tveggja gatna og afmarkast lóðin af bílaplaninu við ... Lesa »

943230_10151348786432330_139907257_n

Uppákoma á Backpackers

Föstudaginn 24. og laugardaginn 25. maí verður einvala lið tónlistarmanna á Akureyri Backpackers. Þeir Stefán Ingólfsson, Matti Saarinen og Halldór Gunnlaugur Hauksson eru sannkallaðir ... Lesa »

Gilið. Mynd: Daníel Starrason

Gilið lokar á morgun vegna viðhalds

Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Strandgötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta ... Lesa »

Gilið. Mynd: Daníel Starrason

Gilið lokað vegna viðhaldsvinnu

Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Strandgötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta ... Lesa »

Í anda Smáranna

Í anda aldraðra

Fyrirhugaðir eru tónleikarnir “Í anda Smáranna” í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri laugardaginn 25.maí næstkomandi. Þar munu félagarnir Gunnar Björn Jónsson, Birgir Björnsson, Snorri ... Lesa »

Oddur Helgi Halldórsson

Enn er Oddur Helgi skammaður

Frétt Akureyrar vikublaðs í síðustu viku þar sem haft var eftir Oddi Helga Halldórssyni hjá L-listanum á Akureyri að aukin sátt væri um Dalsbraut hefur vakið nokkur viðbrögð. Jóhannes ... Lesa »

Glatað listapleis?

Karl Th. Birgisson ritstjóri Herðubreiðar, blaðamaður og fv. kosningastjóri Samfylkingarinnar á Akureyri ritar pistil á eyjan.is sem vakið hefur athygli. Þar segir Karl það furðu sæta ... Lesa »

Börn í Árskóla. Mynd af vef skólans

Börnin fá ekki áheyrn í Skagafirði

Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í morgun, lagði fulltrúi Samfylkingarinnar, Þorsteinn Broddason fram bókun vegna þess að erindi frá 6. bekk Árskóla hefur ekki verið sinnt. Bókunin ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Of hraður akstur í Kjarnagötu

Myndavélabíll lögreglunnar á Akureyri er nú staðsettur í Kjarnagötu á Akureyri og hvetur lögreglan ökumenn til að virða hámarkshraða, sem þar er 30 km/klst. Við eftirlitsstörf í ... Lesa »

Skoða meira