Nýlega hefur nokkuð borið á auglýsingum frá stéttarfélaginu Einingu-Iðju um réttindi starfsfólks á gististöðum og veitingahúsum. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar-Iðju, segir mikið af upplýsingum og athugasemdum varðandi réttindi þessa starfsfólks berast og í auglýsingunni séu helstu þættir sem komið hafi upp. Hann segir fleiri athugasemdir og fyrirspurnir berast í sumar en í fyrra varðandi þennan geira og því hafi þótt nauðsynlegt að vekja upp þessa umræðu.
„Það er margt fólk að vinna í þessum geira og sérstaklega mikið af ungu fólki sem ekki er meðvitað um rétt sinn. Viðbrögðin hafa verið góð, það hafa fjölmargir hringt og komið til okkar og ég veit að þetta hefur mikið verið rætt á vinnustöðunum,“ segir Björn og bendir á að sumarið sé mikil vertíð þessum vinnustöðum og margir sem ekki þekki sinn rétt og atvinnurekendur þekki oft ekki heldur nógu vel til málanna.
Eitt af þeim atriðum sem fram koma í auglýsingunni er að jafnaðarkaup sé ekki til í kjarasamningum. „Í nærri öllum tilvikum er jafnaðarkaup ekki sanngjarnt og heildarútkoman verður lægri en samningar kveða á um og stundum svo óheyrilega lágt að það er alveg skelfilegt. Stundum er fólk mestan part að vinna kvöld og helgar fyrir aðeins örlítið hærra kaup en dagvinnutaxtinn. Við höfum séð alveg ótrúlegar tölur“.
Björn segir það fara vaxandi að atvinnurekendur leiti upplýsinga hjá stéttarfélaginu og í flestum tilvikum sé ástæða þess að brotið er á rétti starfsfólk sú að atvinnurekendur hafi ekki kynnt sér málin nógu vel. Yfirleitt sé ekki brotið á fólki af ásetningi en þó sé það til.
Undanfarin ár hefur meiri áhersla verið lögð á að kynna ungu fólki réttindi sín áður en haldið er út á vinnumarkaðinn. „Við höfum verið að fara í 10. bekkina og líka í framhaldsskólana og það er farið að skila sér. Mér finnst unga fólkið vera meðvitaðara um að það geti sótt sér upplýsingar, það er virkara. Þetta ýtir við þeim, þau halda betur utan um launaseðlana sína og þess háttar. Það hefur verið mikil aukning í að ungt fólk sæki sér þjónustu hingað til okkar“
Eftirfarandi eru nokkur af þeim atriðum sem lögð er áhersla á að kynna:
- Neysluhlé skulu vera sem samsvarar fimm mínútum fyrir hvern unnin klukkutíma og skiptast eftir samkomulagi starfsmanna og stjórnanda.
- Að lágmarki skal borga fjórar klukkustundir í útkalli.
- Óheimilt er að greiða vaktaálag ef ekki kemur fram á vaktaplani hvenær vakt á að byrja og enda. Í þeim tilvikum greiðist dagvinna og yfirvinna.
- Þeir sem verða 16 og 17 ára á árinu eiga strax að fá greitt miðað við 16 og 17 ára taxta, en hjá 18 ára er miðað við afmælisdaginn.
- 22 ára lífaldur jafngildir starfsaldri eftir eitt ár.
- Jafnaðarkaup er ekki til í kjarasamningum





























