Í dag var glatt á hjalla á dvalarheimilinu Hlíð í dag og fjölmennt af heimilisfólki og gestum þegar hænsnahúsið Höllin var vígt og hænur fluttu þar inn. Heimilisfólk á Hlíð hefur beðið með eftirvæntingu eftir að Höllin yrði tilbúin og hænurnar flyttu inn en þegar allar verða fluttar inn verða 15 hænur í húsinu.
Upphafsmenn hænsnahússins eru þeir Jóhann Thorarensen garðyrkjufræðingur og Sigurvin Jónsson, hænsnabóndi á Akureyri, betur þekktur sem uppistandarinn Fíllinn. „Þegar Jóhann garðyrkjugúrú hringdi í mig í byrjun mars og viðraði þá hugmynd að setja upp hænsnahús og matjurtarrækt með íbúum Hlíðar féll ég umsvifalaust fyrir hugmyndinni. Jóhann bauð mér að taka þátt í þessu sem ég þáði með þökkum. Enda veit ég sem stórbóndi og hænsnaáhugamaður að hænur gefa manni gleði og gott líf“ segir Sigurvin.
Það eru margir sem hafa lagt hönd á plóginn við byggingu hússins og gefið efni og vinnu, má þar nefna Nökkva, Húsasmiðjuna, Magnús Jónsson, Íspan, Kristínu Trampe, Kristján Jónsson, Gjafasjóð Hlíðar, Norðurorku, Júlíus Má Baldursson, Fasteignir Akureyrarbæjar, Lífland og starfsfólk Hlíðar.
Höllin er sannarlega réttnefni enda er hér ekki um neinn hænsnakofa að ræða því upphitað plan er framan við húsið og þægilegt hjólastólaaðgengi. Auk þess sem útbúnir hafa verið glæsilegir gróðurkassar þar sem ræktun hefur farið fram í allt sumar.
Bygging hænsnahússins er í góðu samræmi við Eden hugmyndafræðina sem höfð er að leiðarljósi í starfinu á Hlíð en í henni er mikil áhersla er lögð á fjölbreytt líf íbúa og að allir þeirra finni eitthvað við sitt hæfi. Íbúarnir sjá sjálfir um umhirðu hænsnanna og skipta deildirnar því starfi á milli sín eftir vikum. Sú deild sem sér um umhirðuna nýtir eggin þá vikuna. Sérstakur umsjónarmaður og þar af leiðandi kóngur Hallarinnar verður Sigurður Sigmarsson, kenndur við kjörbúðina Alaska sem starfrækt var hér í bæ á árum áður.
Myndirnar tók Hlynur F. Þormóðsson starfsmaður Akureyrarstofu
- Fjölmenni á Hlíð í dag
- Inda Björk Gunnarsdóttir, formaður Félagsmálaráðs, klippir á borðann
- Brit Bieltvedt við vígslu hænsnahallarinnar sem reist var við öldrunarheimilið Hlíð í sumar
- Hænurnar í Höllinni
- Frá vígslu Hallarinnar í dag


































