Vegurinn á Öskjuleið er svo ósléttur að í dag brotnuðu rúður í rútu í eigu Gísla Rafns Jónssonar og Jóns Árna Sigfússonar. Rútan var full af ferðamönnum og farþegar hrukku illa við en enginn slasaðist. Var brugðist við með því að stöðva ferðalagið og bíða eftir annarri rútu sem send var austur og hélt svo áfram með túristana. Gísli Rafn hefur áratuga reynslu af Öskjuferðum en aldrei áður hafa rúður brotnað í bíl á hans vegum vegna „þvottabrettanna“ í veginum.
„Þetta er algjörlega óþolandi ástand,“ segir Gísli Rafn. „Vegurinn er svo ósléttur að lætin verða þannig að það er á mörkunum að farþegarnir heyri í leiðsögumanninum.“
Vegagerðin ber því við að vegurinn sé of þurr til að borgi sig að hefla en Gísli er algjörlega ósammála því sjónarmiði. „Það verður að hefla þótt það sé þurrt.“
Sjá nánari umfjöllun í næsta blaði.






























