Tortryggnin er ekki ástæðulaus

Tortryggnin er ekki ástæðulaus

Ómar Ragnarsson

Síðastliðið þriðjudagskvöld hélt Landsvirkjun opinn samráðs- og kynningarfund í Mývatnssveit þar sem kynnt voru áform um háhitavirkjun í Bjarnarflagi. Var fundurinn talinn að mörgu leyti upplýsandi en sumir fundargestir höfðu á orði að fleiri spurningar hefðu vaknað en fengust svör við.

Mörg vandamál enn óleyst
Ómar Ragnarsson, fréttamaðurinn og náttúruverndarsinninn góðkunni, var einn fundargesta og segist enn hafa miklar efasemdir um að ráðlegt sé að virkja í Bjarnarflagi nú, enda séu mörg vandamál óleyst í öðrum háhitavirkjunum, svo sem Hellisheiðarvirkjun og Svartsengisvirkjun.

„Nú horfum við fram á það að þeir eru búnir að biðja um að minnsta kosti átta ára frest til að finna lausnir á þessum vandamálum á Hellisheiði og nú upplifir maður bara „deja vu“ varðandi Mývatn. Það á að vera búið að ráða við öll vandamál og það verði ekkert vesen en þetta er nákvæmlega það sama og sagt var um hinar virkjanirnar“.

„Ég spurði í gær hvort það kæmi til greina að bíða þessi átta ár sem þeir þurfa til að finna lausn á brennisteinsvetnisvandamálinu við Hellisheiðarvirkjun, til þess að þá væri fyrir hendi einhver lausn. En það kom ekkert svar við því,“ segir Ómar og segir að ekki hafi enn fengist svör við öllum spurningum og enn hafi heldur ekki allra nauðsynlegra spurninga verið spurt.

Mælir settur upp í 10 metra hæð
Það er aðeins einn mælir á svæðinu sem mælir brennisteinsvetnismengun frá núverandi borholum og hann er staðsettur í 10 metra hæð í götunni Helluhrauni en brennisteinsvetni er eðlisþungt efni og safnast því saman í lægðum og lautum.

Ómar segir ríka ástæðu fyrir því að náttúruverndarfólk sé tortryggið þegar kemur að fullyrðingum sem snúa að lausnum á vandamálum tengdum virkjunum. „Náttúruverndarfólk samþykkti Hellisheiðarvirkjun á sínum tíma því það trúði öllum þessum fullyrðingum um að allt yrði í góðu lagi og engin vandamál en annað hefur komið í ljós og nú er ætlast til að allt sé samþykkt einum rómi varðandi Bjarnarflagsvirkjun. Ég sé ekki að það sé nein ástæða til að kvika í því að vera tortrygginn nú þegar sagt er nákvæmlega það sama um Bjarnarflagsvirkjun og sagt var um hinar virkjanirnar“.

Vandamál með niðurdælingu á affallsvatni
„Það veit enginn hvort þetta verður svipað og Hellisheiðarvirkjun og það er ekki bara hún, því það hafa verið mikil vandamál með niðurdælingu á vatni í Svartsengisvirkjun og þegar ég fór að segja frá því á blogginu mínu fyrir tveimur árum þá var sagt að þetta væru bara rógur og dylgjur en núna loksins fyrir einni eða tveim vikum kom svo í ljós að það þarf að grafa þarna 10-15 kílómetra langan skurð og umturna þannig öllu landslagi til þess að leysa þetta vandamál. Sem átti aldrei að vera neitt vandamál. Þeir sögðu á fundinum að það væri mjög góð niðurdæling í Kröflu og ég spurði hvort það teldist góð niðurdæling að affallsvatnið rynni í tjörn sem færi alltaf stækkandi. Þeir sögðu að það væri samt góður árangur af niðurdælingunni,“ segir Ómar.

Brynhildur Þórarinsdóttir

Talandi vefur styrktur

Úthlutun þróunarsjóðs námsgagna fyrir árið 2013 hefur farið fram. Sjóðnum bárust 144 umsóknir, samanlagðar fjárbeiðnir námu tæplega 190 millj. kr. en til ráðstöfunar voru um 43 ... Lesa »

Ian_Anderson_OJT_1200

Erlendar stórstjörnur í Hofi

Menningarhúsið Hof lýkur sínu þriðja starfsári í júní með glæsilegum tónleikum bresku rokkhljómsveitarinnar Jethro Tull. Hljómsveitarmeðlimir bætast þar með í hóp þeirra nær ... Lesa »

IMG_1489

600 björgunarsveitarmenn á Akureyri um helgina

  Ein stærsta grillveisla landsins var haldin í gærkvöldi þegar um 600 sjálfboðaliðar Slysavarnafélagsins Landsbjargar gæddu sér á hamborgurum sem frambjóðendur til stjórnar ... Lesa »

IMG_0713-21-770x450

Salatdressingar fyrir sumardaga

Hér koma fjórar einfaldar uppskriftir af dásamlegum dressingum fyrir sumarsalatið. Ein með öllu 2 dl majones 2 dl sýrður rjómi 1 msk ólífuolía 1/2 sítróna, safi og börkur 1 ... Lesa »

Ragnar Hólm Ragnarsson

Ég er sennilega dálítið mikil tilfinningavera

Ragnar Hólm er mörgum kunnur. Í röskan áratug hefur hann séð um kynningar- og upplýsingamál hjá Akureyrarbæ og ann sinni heimabyggð ákaflega. Í viðtali við Akureyri vikublað ræðir ... Lesa »

Kvennakór Akureyrar

Konur syngja á Blönduósi

Kvennakór Akureyrar sækir Blönduós heim þann 25. maí næst komandi en þá heldur kórinn sína fyrri vortónleika í Blönduóskirkju kl 15:00. Síðari vortónleikarnir verða daginn eftir ... Lesa »

Úr Héðinsfjarðargöngum. Mynd af vef Vegagerðarinnar

Héðinsfjarðargöng lokuð á morgun kl. 10-11

Á morgun, laugardaginn 25. maí milli kl. 10:00 og 11:00 verður Slökkvilið Fjallabyggðar með slökkviliðsæfingu í Héðinsfjarðargöngum. Göngin verða því lokuð meðan á æfingunni ... Lesa »

9779724_s

Ódýrt að fá lús á Siglufirði!

Þótt nú sé ekki kjörlendi fyrir vetrargestinn lúsina á íslenskum heimilum kannaði Verðlagseftirlit ASÍ verð á lúsarsjampói, smokkum og unaðsolíu nýverið. Farið var í 18 apótek en ... Lesa »

13273515_s

Lifrarbólgufaraldur rakinn til frosinna jarðarberja

Niðurstöður rannsókna á lifrarbólgu tilfellum sem greinst hafa í Skandinavíu undanfarna mánuði gefa til kynna að frosin jarðarber séu orsakavaldur lifrarbólgunnar. Matvælastofnun og ... Lesa »

bjorgun

Bíll lenti út í á vestan Öxnadalsheiðar

Betur fór en á horfðist nú í hádeginu þegar tilkynning barst um að bíll hefði lent úti í Norðurá, vestan Öxnadalsheiðar. Svo vel vildi til að Björgunarsveitin Klakkur frá ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá Icelandair og Flugfélag Íslands fyrir að mismuna farþegum, segir kona af Brekkunni sem sendi blaðinu póst. Hún segir að kennari sem kom með Icelandair frá Bandaríkjunum til að ... Lesa »

Thorka_2011

Flestir halda með Þór/KA

MMR kannaði stuðning við knattspyrnulið í efstu deild karla og kvenna á Íslandi (Pepsideildin). Þór/KA var það knattspyrnulið í efstudeild á Íslandi, karla eða kvenna, sem flestir ... Lesa »

Girnilegur, hollur og staðgóður morgungrautur

Fjórði hver borðar ekki reglulega morgunmat

Ríflega þriðjungur svarenda stundar enga líkamsrækt samkvæmt könnun sem Háskólabrú gerði í síðasta mánuði. Byggt er á ríflega 400 svörum, þar af var meirihlutinn Akureyringar. ... Lesa »

lavamynd

Telur ólíklegt að listamaður sé að verki

Hlynur Hallsson myndlistarmaður á Akureyri telur ólíklegt að listamaður eða listamenn hafi verið að verki í Mývatnssveit undanfarið. Alls er búið að skemma þrjú náttúrufyrirbrigði ... Lesa »

umferdarlokanir_vegna_brunnavinnu_24_mai_2013

Uppfærðar upplýsingar vegna viðhaldsvinnu Norðurorku í miðbænum

Á morgun, föstudag 24. maí hefjast framkvæmdir við að fjarlægja þrjá hitaveitubrunna í Miðbænum, tvo í Kaupvangsstræti og einn í Skipagötu. Nánar tiltekið eru brunnarnir á ... Lesa »

image001

Markaðsstofa Norðurlands vill gjaldtöku af ferðamönnum

Aðalfundur Markaðsstofu Norðurlands var haldinn á Akureyri í dag og sendi fundurinn frá sér ályktun þar sem skorað er á stjórnvöld að bregðast við yfirvofandi hættu á óafturkræfum ... Lesa »

Lundargata 9

Hús vikunnar: Lundargata 9

Síðastu Hús vikunnar voru Lundargata 7 og Gránufélagsgata 10 og nú er það bara næsta hús en það stendur á horni þessara tveggja gatna og afmarkast lóðin af bílaplaninu við ... Lesa »

943230_10151348786432330_139907257_n

Uppákoma á Backpackers

Föstudaginn 24. og laugardaginn 25. maí verður einvala lið tónlistarmanna á Akureyri Backpackers. Þeir Stefán Ingólfsson, Matti Saarinen og Halldór Gunnlaugur Hauksson eru sannkallaðir ... Lesa »

Gilið. Mynd: Daníel Starrason

Gilið lokar á morgun vegna viðhalds

Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Strandgötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta ... Lesa »

Gilið. Mynd: Daníel Starrason

Gilið lokað vegna viðhaldsvinnu

Um miðjan dag á morgun, föstudaginn 24. maí, hefjast starfsmenn Norðurorku handa við að skipta um götubrunna í Gilinu (Kaupvangsstræti) og Strandgötu á Akureyri. Þar af leiðandi geta ... Lesa »

Í anda Smáranna

Í anda aldraðra

Fyrirhugaðir eru tónleikarnir “Í anda Smáranna” í Menningarhúsinu Hofi, Akureyri laugardaginn 25.maí næstkomandi. Þar munu félagarnir Gunnar Björn Jónsson, Birgir Björnsson, Snorri ... Lesa »

Oddur Helgi Halldórsson

Enn er Oddur Helgi skammaður

Frétt Akureyrar vikublaðs í síðustu viku þar sem haft var eftir Oddi Helga Halldórssyni hjá L-listanum á Akureyri að aukin sátt væri um Dalsbraut hefur vakið nokkur viðbrögð. Jóhannes ... Lesa »

Glatað listapleis?

Karl Th. Birgisson ritstjóri Herðubreiðar, blaðamaður og fv. kosningastjóri Samfylkingarinnar á Akureyri ritar pistil á eyjan.is sem vakið hefur athygli. Þar segir Karl það furðu sæta ... Lesa »

Börn í Árskóla. Mynd af vef skólans

Börnin fá ekki áheyrn í Skagafirði

Á fundi byggðarráðs Skagafjarðar í morgun, lagði fulltrúi Samfylkingarinnar, Þorsteinn Broddason fram bókun vegna þess að erindi frá 6. bekk Árskóla hefur ekki verið sinnt. Bókunin ... Lesa »

Lögreglubíll. Mynd úr safni

Of hraður akstur í Kjarnagötu

Myndavélabíll lögreglunnar á Akureyri er nú staðsettur í Kjarnagötu á Akureyri og hvetur lögreglan ökumenn til að virða hámarkshraða, sem þar er 30 km/klst. Við eftirlitsstörf í ... Lesa »

Skoða meira