Dregist hefur úr hömlu að lagfæra listaverkið “Minnisvarði um framtíðina” og er eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur, frá árinu 1995 og stendur á hól í Innbænum. Verkið samanstendur af þremur steinum og hefur í tvígang hrunið. Nú er svo komið að um langa hríð hefur einn steinninn legið flatur og listaverkið er því laskað og í raun vondur minnisvarði um nútíðina að sögn íbúa í Innbænum. Hann segir málið vanvirðingu við höfund listaverksins, listaverkið sjálft og íbúa og ferðamenn.
Þórgnýr Dýrfjörð framkvæmdastjóri Akureyrarstofu segir að þaað hafi dregist um of að laga þetta verk en Framkvæmdadeild bæjarins muni nú drífa í því. „Íbúum Innbæjarins er umhugað um verkið eins og annað í umhverfi sínu og þiggjum við með þökkum ábendingar um það sem betur má fara. Raunar bíður okkar nokkurt átak í viðhaldi útilistaverka sem skynsamlegt væri að gera áætlun um og takast á við í áföngum á næstu árum, en nauðsynlegum fjármunum hefur ekki verið veitt til þessa í aðhaldi síðustu ára.”





























