Umferðarkönnun stendur nú yfir á Norðurlandi. Vinnan er hluti af rannsókn Háskólans á Akureyri á áhrifum Héðinsfjarðarganga á samfélög Mið-Norðurlands, styrkt af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar.Rannsóknin felst meðal annars í umferðarkönnunum, viðtölum, spurningakönnunum meðal íbúa, brottfluttra og ferðamanna.
Fyrri hluti gagnasöfnunar fór fram árið 2009 en síðari hlutinn 2012. Umferðarkönnunin var gerð í gær og aftur á morgun, laugardag.
Í gær voru um 2.600 ökutæki stöðvuð á þremur stöðum, Ólafsfjarðarmúla, Héðinsfirði og Ketilási í Fljótum.





























