Meir en hundrað störf í boði ef kísilmálmverksmiðja rís á Bakka, að sögn Gunnlaugs Stefánssonar.
„Þetta er ánægjulegar fréttir og enn einn áfangi að markmiðum okkar Þingeyinga um öfluga atvinnuuppbyggingu hér. Sveitarfélagið hefur verið í viðræðum við Thorsil um lóð á Bakka og hafnaraðstöðu á undanförnum mánuðum. Og hafa þær viðræður gengið vel. Reiknað er með að á annað hundrað bein störf munu skapast í verksmiðjunni við þennan fyrsta áfanga,“ segir Gunnlaugur Stefánsson, forseti sveitarstjórnar Norður-Þings vegna frétta um fyrirhugaða kísilmálmverksmiðju á Bakka.
„Ég ætla að leyfa mér að vera mjög bjatsýnn á framtíð okkar Þingeyinga. Og að á næstu árum og áratugum muni verða mikið uppbygging hér á mörgum sviðum atvinnu- og mannlífs. Og að okkur takist að skjóta styrkum stoðum undir byggðarlögin hér,“ segir Gunnlaugur.





























