Á ársfundi Byggðastofnunar sem haldinn var í Menningarhúsinu Miðgarði í Skagafirði nýverið var Örlygi Kristfinnssyni, forstöðumanni Síldarminjasafnsins á Siglufirði, afhentur Landstólpinn árið 2012.
Í rökstuðningi dómnefndar segir að Örlygur hafi með störfum sínum undanfarin ár vakið athygli á Siglufirði á jákvæðan hátt og að sá árangur sem náðst hefur á Siglufirði byggi að miklu leyti á frumkvöðlastarfi Örlygs í gegnum tíðina. „Hann er einn af frumkvöðlunum að Síldarminjasafni Íslands, sem hefur hlotið viðurkenningar bæði innanlands og erlendis. Örlygur hefur einnig staðið að uppbyggingu Herhússins og þeirri starfssemi sem þar fer fram. Hann hefur verið ötull í að gera upp gömul hús á Siglufirði sem hafa breytt ásýnd bæjarins verulega.“
Örlygur hefur haft mikil áhrif á samfélag sitt og áhugi hans og eldmóður hafa smitast út í samfélagið. „Þau verkefni sem Örlygur hefur komið að á Siglufirði hafa breytt ásýnd og ímynd staðarins. Hann hefur virkjað heimafólk til þátttöku í verkefnunum, áhugi hans á gömlum húsum hefur smitað út frá sér og má sjá það á fjölda gamalla uppgerðra húsa á Siglufirði.“
Örlygur er frumkvöðull í menningarferðaþjónustu á Siglufirði. Fleiri hafa komið í kjölfarið, s.s. Þjóðlagasetrið, Herhúsið, Rauðka, Þjóðlagahátíð, Síldardagar og fl. Frá því að uppbyggingin Síldarminjasafnsins hófst hefur fjöldi gesta komið á Siglufjörð. Eftir að Héðinsfjarðagöngin voru opnuð fjölgaði gestum Síldarminjasafnsins verulega, frá tæplega 12 þús. gestum árið 2010 í 20 þúsund árið 2011. Því er ljóst að safnið hefur veruleg áhrif á samfélagið.
Í nýrri rannsókn um áhrif atvinnuuppbyggingar á sviði menningar og lista kemur fram að uppbyggingin á Siglufirði hefur haft áhrif á samfélagið. Jákvæð ímynd, sterkari sjálfsmynd íbúa, meiri jákvæðni í samfélaginu eru atriði sem nefnd eru. Þetta hefur síðan áhrif á aðdráttarafl samfélagsins, bæði til búsetu og heimsóknar. Mikil efnahagsleg áhrif eru af uppbyggingunni.






























