Ásbjörn Björgvinsson, framkvæmdastjóri Markaðsskrifstofu ferðamála á Norðurlandi, segir rétt að landsmenn gæti hófs í samskiptum við þekkt fólk sem kemur hingað til lands. Í ummælum sem Ásbjörn lét falla á vefsíðunni akureyrivikublad.is um Tom Cruise segir framkvæmdastjórinn að hann vonist til að menn missi sig ekki þrátt fyrir heimsókn Cruise. Þá beinir hann ummælum sínum sérstaklega til fjölmiðla og segist vona að Tom Cruise fái vinnufrið án „afskipta og ágangs forvitinna blaða og ljósmyndara“ eins og hann orðar það.
Fleiri hafa haft orð á hinu sama og jafnvel sett fram hugmyndir um að Ísland gæti orðið að sumarleyfisparadís fræga fólksins með því að hér fái stjörnurnar að vera í friði.





























