Síðdegis í gær valt bíll á Hvanneyrarbrautinni á Siglufirði. Ökumaðurinn var eldri kona og með henni í bílnum var 13 ára ömmustelpa. Stúlkan hlaut minniháttar áverka en ökumaðurinn var flutt á Sjúkrahúsið á Akureyri.
Eins og sjá má á myndunum var þak bílsins var klippt í sundur til að ná ökumanninum út. Sagt var frá þessu á vefnum siglo.is
- Bíllinn sem valt. Mynd: siglo.is
- Bíllinn sem valt. Mynd: siglo.is

































