Óeining er meðal nefndarmanna skipulagsnefndar á Akureyri eftir að meirihlutinn ákvað að þétta byggð í Naustahverfi í trássi við athugasemdir íbúa. Tugir íbúa við Sómatún, Sporatún og Sokkatún höfðu gert athugasemdir sem á fundi skipulagsnefndar 13. júní sl. var brugðist við og samþykkti þá skipulagsnefnd samhljóða að breyta skipulagstillögunni þannig að í Sómatúni fjölgaði íbúðum úr 5 í 8 en ekki í 10 eins og upphaflega tillagan gekk út á.
Í fundargerð frá fundi Skipulagsnefndar í síðustu viku kemur fram að frá lóðarhafa hafi borist andsvör frá lóðarhafa auk leiðréttinga á „rangfærslum“ og þess óskað að skipulagsnefnd endurskoðaði fyrri bókun.
Skipulagsnefnd samþykkti að fella fyrri bókun úr gildi og leyfa fjölgun íbúða í 10.
Sigurður Guðmundsson, A-lista og Sóley Björk Stefánsdóttir, V-lista greiddu atkvæði gegn þessari afgreiðslu. Sigurður segir í samtali við Akureyri vikublað að þetta hverfi taki sífelldum breytingum sem sé saga út af fyrir sig en hann telji að vilji ibúanna hefði átt að ráða fremur en vilji verktaka og arkitekts. „Við vorum á fyrri fundinum öll sammála um að fara að vilja íbúanna og ég er ekki sáttur við svona vinnubrögð. Þessar meintu rangfærslur eins og þær eru kallaðar í fundargerð eru hreinn tittlingaskítur,“ segir Sigurður.





























