Í nýjasta tölublaði Skólaakurs, vefriti um skólamál Akureyrarbæjar kemur fram að stefnt sé að því að ráða mannauðsstjóra sem sinna mun ráðgjöf til stjórnenda í skólum vegna starfsmannamála ásamt því að veita starfsfólki skólanna ráðgjöf.
Í viðtalsrannsókn við skólastjóra leik- og grunnskóla sem kynnt var á vormánuðum 2011 kom m.a. fram að álag vegna starfsmannamála er mjög mikið og stendur faglegu starfi skólastjóra fyrir þrifum.
Einnig hefur verið ákveðið að skólastjórum leik- og grunnskóla verði veitt ráðgjöf til að efla faglega/kennslufræðilega forystu í skólunum, skerpa á stjórnunarfyrirkomulagi skólanna og skilgreina ábyrgðarhlutverk, starfsskyldur og vinnubrögð,
umsjónarkennara, deildarstjóra, aðstoðarskólastjóra og fleiri hópa.





























