Á fundi sínum í gær ræddu nefndarmenn umhverfisnefndar Akureyrarbæjar eyðingu á starra og starrahreiðrum. Nefndin vill vekja athygli á því að starrinn sé alfriðaður fugl og því alvarlegt brot á fuglaverndarlögum að eyðileggja hreiður og deyða unga hans.
Nefndin vill beina því til allra er málið varðar að virða þessa friðun og láta fuglinn ljúka varpi og koma upp ungum og að því loknu þá grípa til fyrirbyggjandi aðgerða með því að loka fyrir aðgengi starrans til hreiðurgerðar.
Starrinn er smávaxinn, svartleitur og kvikur spörfugl sem hefur breiðst um landið frá því hann nam hér land á Höfn í Hornafirði upp úr 1940.




























