Samfélags- og mannréttindaráð hefur falið framkvæmdastjóra að óska eftir tilboði í gerð launaúttektar hjá bænum. Í úttekt sem gerð var árið 2007 mældist ekki marktækur munur á launum kynja að teknu tilliti til starfs, starfssviðs, aldurs, starfsaldurs og vinnutíma en ráðið telur mikilvægt að fylgjast vel með svo sá góði árangur sem náðst hefur í að jafna launamun kynjanna hjá sveitarfélaginu haldist.
Guðrún Þórsdóttir, V-lista og Regína Helgadóttir, B-lista létu á síðasta fundi ráðsins bóka sérstaklega um mikilvægi nýrrar úttektar. „Ég tel mjög mikilvægt að launamunur kynjanna sé skoðaður til þess að hægt verði að leiðrétta ef um misrétti sé að ræða. Akureyrarbær getur ekki verið þekktur fyrir að borga ekki sömu laun fyrir sömu vinnu,“ segir Guðrún Þórsdóttir.
„Í ljósi umræðu um neikvæða þróun á launamun kynjanna einkum hjá opinberum aðilum, tel ég brýnt að vinnu við úttekt á launum starfsfólks Akureyrarbæjar verði hraðað. Bendi ég á í því sambandi að í Jafnréttisstefnu Akureyrarbæjar er kveðið á um að úttektina eigi að gera vorið 2012,“ segir Regína Helgadóttir B-lista.






























